9. mars 2023 kl. 15:28
Innlendar fréttir
Varað við útivist og áreynslu vegna mikils svifryks
Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík varar við því að mikið svifryk er við mestu umferðaræðar í borginni á háannatímum í dag. Fólk er því hvatt til að draga úr notkun einkabílsins ef hægt er. Sömuleiðis er börnum og fólki sem er viðkvæmt fyrir í öndunarfærum ráðlagt að forðast útivist og áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna.
Mesta svifryksmengun dagsins mældist við leikskólann Lund á háannatíma umferðar í morgun. Á sama tím amældist mikið svifryk við Grensásveg, við Faxaflóahafnir í Laugarnes og Vesturbæjarlaug. Svifryksmengunin er rakin til þess að hægur vindur er í borginni, kalt og þurrt. Því þyrlast ryk upp þegar bílar keyra um götur borgarinnar.