22. maí 2023 kl. 23:47
Innlendar fréttir

Suðvestanstormur eða hvassviðri skellur á í fyrramálið

Veðurstofan spáði sunnan- og suðvestan stormi eða hvassviðri 23. maí 2023, nánast um allt land að Austfjörðum undanskildum og gaf út gula viðvörun þess vegna.
Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Veðurstofan varar við suðvestanstormi eða hvassviðri sem skellur yfir í fyrramálið og hefur gefið út gular viðvaranir fyrir landið allt að Austfjörðum undanskildum.

Víða fylgja veðrinu skúrir, slyddu- eða haglél. Varasamar aðstæður geta myndast við fjöll og víða getur orðið erfitt að vera á ferðinni. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.

Annars er veðurspáin svohljóðandi: Skýjað með köflum í hægri suðlægri átt framan af nóttu, rigning með köflum sunnan- og vestantil.

Þegar líður á nóttina hvessir og gengur í áðurnefnt suðvestanhvassviðri eða storm, 15 til 23 metra á sekúndu með skúrum eða slydduéljum, en heldur hægara verður og þurrt að kalla norðaustanlands. Aðeins að draga úr vindi seint annað kvöld. Hitinn verður á bilinu 5 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi.