21. júní 2023 kl. 19:22
Innlendar fréttir
Samgöngur
Veruleg fækkun mála frá fyrri árum
Endurkröfunefnd vegna tjónvalda í umferðinni bárust alls 20 mál til úrskurðar á síðasta ári. Það er veruleg fækkun mála frá fyrri árum, árinu á undan bárust nefndinni alls 175 mál til úrskurðar og 2020 voru þau 130 talsins.
Af málunum samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða að hluta í 19 málum. Í fjárhæðum talið nema endurkröfur síðasta árs rúmlega 19,7 milljónum króna. Nefndin telur að ætla megi að fækkun mála tengist covid-faraldrinum.
Ástæður endurkröfu voru oftast ölvun tjónvalds eða í um 68 prósent endurkrafnanna. Lyfjaáhrif voru næstalgengasta ástæða endurkröfu og voru þau tilvik rúm 42 prósent málanna. Í tveimur málum voru ökumenn endurkrafðir vegna ökuréttindaleysis.