26. júní 2023 kl. 12:10
Innlendar fréttir
Bandaríkin
Íslendingum hefur verið neitað að koma til Bandaríkjanna eftir ferðalög til Kúbu
Utanríkisráðuneytið greinir frá því að nokkrir Íslendingar hafi leitað til borgaraþjónustunnar eftir að hafa verið neitað að koma til Bandaríkjanna.
Ferðamennirnir töldu sig hafa gilda ESTA-ferðaheimild en það skiptir litlu ef fólk hefur farið til Kúbu. Kúba var sett á lista Bandaríkjanna yfir lönd hliðholl hryðjuverkum í janúar 2021.
Hver sá sem ferðast til Kúbu missir réttinn til undanþágu frá vegabréfsáritunarskyldu til Bandaríkjanna. Þeir verða því að sækja um vegabréfsáritun hjá sendiráði Bandaríkjanna vilji þeir ferðast til Bandaríkjanna, hvort sem þeir hafa gilda ferðaheimild eða ekki.