6. júlí 2023 kl. 17:28
Innlendar fréttir
Reykjavíkurborg

Dagur biður Taylor Swift um að koma við í Reykjavík næsta sumar

Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson segist ætla að sjá persónulega til þess að Taylor Swift njóti dvalarinnar á Íslandi ef hún gerir Reykjavík að viðkomustað á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu næsta sumar. Hann segir Reykjavík fullkomna endastöð fyrir ferðalagið.