26. júlí 2023 kl. 16:10
Innlendar fréttir
Náttúruvá
Jarðskjálfti suðaustur af Skjaldbreið
Jarðskjálfti tveir komma níu að stærð mældist rúma fjóra kílómetra suðaustur af Skjaldbreið klukkan hálf tvö í dag. Jarðskjálftahrina hefur verið í gangi við Skjaldbreið frá því um miðjan mánuðinn.
Skjaldbreið er á vesturgosbeltinu og skjálftahrinur eins og þessi koma nokkuð reglulega. Þó hefur verið rólegt á þessu svæði síðustu daga að sögn Lovísu Mjallar Guðmundsdóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Engin merki eru um gosóróa og ekki að sjá á gögnum annað en að þetta sé hefðbundin skjálftavirkni.