4. ágúst 2023 kl. 7:53
Innlendar fréttir
Kópavogsbær
Fjölluðu um ónæði af þyrluflugi í bænum
Bæjarráð Kópavogs fjallaði um ónæði af þyrluflugi í bænum á fundi sínum í gær. Þyrluflug hefur aukist frá því eldgosið hófst við Litla Hrút á Reykjanesskaga og er mörgum þeirra flogið frá Reykjavíkurflugvelli yfir Kópavog áleiðis að gosstöðvunum. Fram kom í fréttum í vikunni að ábendingar hafi borist Reykjavíkurborg vegna þyrluflugsins frá íbúðum í Skerjafirði, við Hlíðarenda, Vesturbænum, Austurbænum og úr Fossvogsdal. Þá verði íbúar á Kársnesi í Kópavogi mikið varir við flugið.
Indriði I. Stefánsson, varabæjarfulltrúi Pírata, lagði fram erindi um þyrluflugið á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær. Hann segir að erindinu hafi verið vísað til bæjarstjóra og að farið verði í hávaðamælingar.