13. ágúst 2023 kl. 8:10
Innlendar fréttir
Veður

Rjómablíða víða en lágskýjað austantil

Búast má við hlýju veðri, hægum vindi og sól víða um land í dag. Hiti gæti farið upp í 22 stig þar sem best lætur.

„Víða rjómablíða í dag, en þó verður áfram lágskýjað austantil og
eins gæti verið vart við þokuloft hér og þar í fyrstu, en sólin mun
bræða það fljótt og vel,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Fremur svalt verður þar sem skýjað verður en hitinn gæti þar náð tíu stigum.

Á morgun má búast við bjartviðri víða um land. Vindáttin verður líklega orðin suðvestlæg og einnig hlýtt um allt land.

Gleðigangan 2023, hápunktur Hinsegin daga.
RÚV / Ari Páll Karlsson

Hiti og sól var í höfuðborginni í gær á hápunkti Hinsegin daga. Búast má við jafnvel hlýrra veðri í dag.