13. ágúst 2023 kl. 12:41
Innlendar fréttir
Lögreglumál

Þrír handteknir fyrir að bera út hatursboðsskap

Mikill mannfjöldi var í miðborg Reykjavíkur í nótt í kjölfar gleðigöngunnar. Nóttin gekk vel á höfuðborgarsvæðin, segir í tilkynningu frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu en þrátt fyrir það voru þrír menn voru handteknir, grunaðir um að breiða út hatursboðsskap.

Mönnunum virtist sérlega uppsigað við hinsegin fólk og fólk af erlendum uppruna, segir í tilkynningunni. Þeir eru meðal annars grunaðir um eignarspjöll á hinsegin fánum í síðustu viku. Einum var fljótlega sleppt úr haldi en tveir voru vistaðir vegna rannsóknar málsins og yfirheyrslur yfir þeim standa nú yfir.