20. ágúst 2023 kl. 22:58
Innlendar fréttir
Reykjavíkurborg
Kviknaði í bíl á Miklubraut
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með viðbúnað við Miklubraut um klukkan ellefu í kvöld þar sem eldur kviknaði í bíl undir göngubrúnni við Grundargerði.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar, varðstjóra á aðgerðarsviði slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, kviknaði í bílnum í akstri en ökumanni tókst að leggja bílnum og allir komust út.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki.
Fréttin hefur verið uppfærð.