23. september 2023 kl. 10:08
Innlendar fréttir
Leit og björgun
Útkall vegna elds í fiskibát í nótt
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfn björgunarskipsins Sigurvins, frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru kölluð út á mesta forgangi í nótt eftir að stjórnstöð gæslunnar fékk tilkynningu um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts um 500 metra norður af Siglufjarðarhöfn. Þrír voru í bátnum og sakaði ekki.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að björgunarskipið hafi farið frá Siglufirði örfáum mínútum eftir útkallið, tekið fiskibátinn á síðuna og fært að bryggju á Siglufirði þar sem slökkviiliðsmenn fóru um borð. Þyrlusveitin var þá afturkölluð.