2. október 2023 kl. 7:20
Innlendar fréttir
Veður

Varað við hviðum við fjöll í annars aðgerðalitlu veðri

Varað er við hvössum vindstrengjum við fjöll á Vesturlandi í dag, þar sem varasamar aðstæður geta myndast fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Norðaustanátt verður á landinu, 8 - 15 metrar á sekúndu. Rigning norðan- og austanlands en bjart að mestu á landinu sunnanverðu. Hiti verður 4 - 12 stig, hlýjast syðst.

Á morgun er spáð svipuðu en eilítið kaldara veðri áfram; norðaustan 5 - 13 metrar á sekúndu, víða rigning á norðanverðu landinu en stöku skúrir sunnan heiða.