3. október 2023 kl. 7:28
Innlendar fréttir
Veður

Norðan- og austanáttir ríkjandi út vikuna

Spáð er slyddu og snjókomu til fjalla norðanlands í dag en mildara veðri með skúrum syðra. Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag, 5 - 13 metrum á sekúndu. Henni fylgir dálitil rigning um norðanvert landið og jafnvel slydda eða snjókoma til fjalla. Sunnanlands verður austanátt með stöku skúrum.

Á morgun verður austanáttin ríkjandi um land allt, 8 - 15 metrar á sekúndu, og hvassast verður syðst. Þessu fylgir lítilsháttar rigning á Suðvesturlandi en annars staðar verður skýjað að mestu og dálitlar skúrir eða él. Hiti verður 3 - 11 stig, hlýast syðst.

Norðan- og austanáttir verða svo ríkjandi áfram næstu daga með heldur kólnandi veðri, rigningu á köflum en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðanlands. Það bætir svo heldur í úrkomu á Norður- og Austurlandi um helgina en annars staðar rofar til.