4. október 2023 kl. 6:57
Innlendar fréttir
Veður

Hvassviðri spáð á Suðurlandi á morgun

Í dag er spáð lægðagangi fyrir sunnan og austan land sem beinir hingað austan- og
norðaustanáttum. Lægð gerist nærgöngul á morgun og verður því allhvass eða hvasst við suðurströndina.

Svalt á norðanverðu landinu, en milt syðra. Lægðasvæðin fjarlægjast er nær dregur helgi
og hæð færist yfir landið, en lægir því, léttir til og kólnar í veðri.

Á sunnudag kemur lægð vestan frá Grænlandi og gengur í suðvestanstrekking með rigningu sunnan- og vestanlands og hlýnar heldur í bili.