„Ég held að enginn karlmaður ætli sér inn í búningsklefa til að misnota fólk“
Veiga Grétarsdóttir hafði ekki fundið fyrir miklu bakslagi í umræðu um hinsegin fólk þar til lygasaga fór á flug um sundferð hennar í Grafarvogslaug fyrir stuttu. Haldið var fram að stúlkur á grunnskólaaldri hefðu mætt nöktum karlmanni í búningsklefanum.
Hún fann sig knúna til þess að stíga fram opinberlega og greina frá atvikinu sem um ræðir.
Stúlkurnar höfðu flissað og hlegið að henni í sturtuklefa laugarinnar. Veiga gaf því ekki gaum, en lét kennara vita. Vonaðist hún eftir því að stúlkurnar fengju í kjölfarið fræðslu um trans fólk.
Veiga segir að hún viti til þess að jafnvel fullorðið fólk geri grín að fólki sem kunni að vera öðruvísi.
„Ég á sirka 15-20 vinkonur sem eru trans og þær eru kannski tvær eða þrjár, með mér, sem hafa farið í sund – hinar þora ekki.“