Hægt að skrá aðsetur í atvinnuhúsnæði ef frumvarp gengur eftir
Hægt verður að skrá aðsetur sitt í atvinnuhúsnæði ef frumvarp, sem innviðaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar, nær fram að ganga.
Innviðaáðuneytið hefur haft til hliðsjónar skýrslu starfshóps frá júní 2023 um úrbætur á brunavörnum í atvinnuhúsnæði þar sem fólk býr. Starfshópurinn var myndaður eftir stórbruna í húsi við Bræðraborgarstíg í Reykjavík þar sem þrír létust og nokkrir voru fluttir á slysadeild.
Úr varð skýrsla með þrettán tillögum og fól innviðaráðherra starfshópi að skoða og fylgja eftir fjórum af þeim þrettán tillögum.
Lagt er til að þeim sem eru skráðir án tilgreinds heimilisfangs og hafi fasta búsetu í atvinnuhúsnæði bjóðist að skrá sig með sérstakt aðsetur hjá Þjóðskrá Íslands. Þetta er gert í öryggisskyni svo slökkvilið og aðrið viðbragsaðilar viti hverjir búa í húsnæði þegar vá ber að.
Í frumvarpinu er ákvæði sem leggur ábyrgð á eigendur atvinnuhúsnæðis um að skráning einstaklinga sem hafa fasta búsetu í húsnæði þeirra sé rétt.
Í frumvarpinu er að finna ýmis önnur ákvæði svo sem heimildir slökkviliðsins til að hafa eftirlit með brunavörnum í íbúðahúsnæði -- og beita sektum.