22. október 2023 kl. 18:01
Innlendar fréttir
Lögreglumál
Talið að glerbroti hafi verið beitt í vopnaðri árás í miðborginni
Þeir fimm sem handteknir voru í nótt vegna vopnaðrar árásar í miðborg Reykjavíkur eru enn í haldi lögreglu.
Fimm voru handteknir í kjölfar hópslagsmála í miðborginni, þar sem einn hlaut áverka eftir oddhvasst vopn. Í fyrstu var talið að hnífi hefði verið beitt, en síðar kom í ljós að líklega hefði hvasst glerbrot verið notað. Áverkar mannsins voru ekki eins alvarlegir og óttast var í fyrstu. Að óbreyttu verður þeim sem er í haldi sleppt að lokinni skýrslutöku.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru allir sem tengjast málinu um tvítugt.