30. október 2023 kl. 6:57
Innlendar fréttir
Veður

Rólegheitaveður í dag en hvessir á morgun

Í dag verður rólegheitaveður, skýjað með köflum eða bjartviðri. Stöku skúrir eða slydduél verða úti við sjávarsíðuna. Á morgun hvessir nokkuð við suðurströndina með austankalda eða strekkingi síðdegis og lítils háttar skúrum, annars hægari vindur og yfirleitt bjartviðri.

Veðurspá á hádegi 30. október 2023
Veðurstofa Íslands

Veðurspá á hádegi í dag.

Á miðvikudag hvessir enn, mest syðra og skúrir eða él á austanverðu landinu, annars yfirleitt bjartviðri. Hiti að fimm stigum að deginum.