14. nóvember 2023 kl. 6:41
Innlendar fréttir
Veður
Skúrir austanlands og með suðurströndinni í dag
Veðurspá fyrir daginn í dag gerir ráð fyrir austan 5-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum á sunnanverðu landinu. Skúrir verða austanlands og með suðurströndinni, en yfirleitt þurrt annars staðar.
Austan og suðaustan 5-13 á morgun og dálítil rigning, en hægari vindur og bjartviðri á norðanverðu landinu.
Hiti 0 til 7 stig, mildast sunnantil.