29. nóvember 2023 kl. 13:29
Innlendar fréttir
Stjórnmál

Átta millj­ón­ir til hjálp­ar­sam­taka víða um land

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að veita tíu hjálparsamtökum styrk fyrir jólahátíðina, svo sem venja er.

Styrkurinn er átta milljónir króna og skiptist jafnt á milli eftirfarandi hjálparsamtaka:

  • Fjölskylduhjálp Íslands.
  • Hjálparstarf kirkjunnar.
  • Hjálpræðisherinn á Íslandi.
  • Mæðrastyrksnefnd Akureyrar.
  • Mæðrastyrksnefnd Hafnafjarðar.
  • Mæðrastyrksnefnd Kópavogs.
  • Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.
  • Mæðrastyrksnefnd Vesturlands.
  • Rauði krossinn á Íslandi.
  • Samhjálp.