9. desember 2023 kl. 7:43
Innlendar fréttir
Veður

Allt að 15 stiga frost í innsveitum norðanlands

Í dag er spáð austlægri, eða breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu, en 8-13 syðst á landinu fram undir kvöld. Það verður víða léttskýjað, en sums staðar lítilsháttar él austanlands.

Hiti verður frá frostmarki syðst á landinu, niður í 15 stiga frost í innsveitum á Norðurlandi.