Það verða austlægar áttir á landinu í dag og á morgun, yfirleitt austan strekkingur. Það verður dálítil snjókoma öðru hvoru, en þurrt að kalla fyrir norðan í dag.
Það birtir til fyrir sunnan og vestan á morgun, gamlársdag, en útlit fyrir stöku él á Norðaustur- og Austurlandi.
Áramótaveðrið lítur þokkalega út um mest allt land, segir í hugleiðingum veðurfræðings, en þegar kemur fram á nýtt ár þá bætir jafnt og þétt í vind og ofankomu á Austurlandi.