15. janúar 2024 kl. 16:55
Innlendar fréttir
Kjaramál
Kjaradeila fagfélaganna til ríkissáttasemjara
Kjaradeilu fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Samninganefndir Rafiðnaðarsambands Íslands og aðildarfélaga, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og MATVÍS ganga saman til kjaraviðræðna. Undir eru 30 kjarasamningar en saman semja þessi félög fyrir sjötíu prósent iðn- og tæknifólks á almennum vinnumarkaði hér á landi.