Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 23 ára karlmanni, Daníel Loga Matthíassyni. Síðast er vitað um ferðir hans í verslun Krónunnar á Grandanum í Reykjavík. Logi er með dökkt krullað sítt hár bundið í hnút. Hann er klæddur í svartri úlpu, hvítri rúllukragapeysu, ljósbrúnum buxum og svörtum skóm.
Lögreglan biður þá sem geta veitt upplýsingar um ferðir Daníels Loga að hringja tafarlaust í síma 112.