12. febrúar 2024 kl. 15:43
Innlendar fréttir
Veður

Holtavörðuheiði gæti lokað með skömmum fyrirvara

Norðaustanstormur gengur yfir landið norðan- og vestanvert, með hríð og víða slæmu skyggni til fjalla. Vegagerðin lýsir yfir óvissustigi á fjölda fjallvega vegna veðursins, sem þýðir að þar gæti orðið ófært með skömmum fyrirvara. Það á við um Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Djúpveg um Ísafjarðardjúp og Súðavíkurhlíð. Ófært er um Fjarðarheiði og Dynjandisheiði.

Nýjustu upplýsingar frá Vegagerðinni um vegalokanir má nálgast á Umferðin.is.

Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum, þar er þó enn allt með kyrrum kjörum að sögn Ofanflóðavaktar Veðurstofunnar. Eitt snjóflóð féll á norðanverðum Vestfjörðum í morgun en olli ekki tjóni. Flóðið fór yfir veg í sunnanverðum Súgandafirði, fjarri byggð á Suðureyri.