19. febrúar 2024 kl. 15:29
Innlendar fréttir
Eurovision

Áhorf á fyrra und­an­kvöld Söngva­keppn­inn­ar svipað og í fyrra

Meðaláhorf á fyrra undanúrslitakvöld Söngvakeppninnar á laugardag var 35 prósent. Meðaláhorfið í fyrra var 37 prósent. Uppsafnað áhorf var 45 prósent, miðað við 48 prósent í fyrra.

Töluverðum þrýstingi var beitt um að hætt yrði við keppnina hér á landi og þar með þátttöku í Eurovision. Margir höfðu orð á því að ætla að sniðganga keppnina ef hún yrði haldin. Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri keppninnar segir æðislegt að sjá hvað áhuginn á keppninni er mikill.