Rafmagnstruflanir hafa verið á Mýrunum og í Borgarfirði síðan klukkan sex í morgun og á níunda tímanum varð rafmagnslaust í Borgarnesi. Guðjón Björnsson sérfræðingur í stjórnstöð hjá RARIK segir starfsmenn að öllum líkindum búna að ná utan um bilun sem varð í kerfinu. Rafmagn er komið aftur á og engar truflanir ættu að vera í kerfinu.
Starfsmenn í Geirabakarí í Borgarnesi dóu ekki ráðalausir þrátt fyrir rafmagnsleysið í bænum og héldu vinnu áfram með því að nota vasaljós á símum sínum eins og sést á mynd sem þeir birtu á Facebook-síðu bakaríisins.