Krefjast þess stjórnvöld tryggi fjárstuðning til UNRWA
Á sjötta tug manns mættu á Austurvöll í dag til þess að krefjast þess að Ísland tryggi fjárhagsstuðning til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, en Ísland er í hópi þeirra ríkja sem ákváðu að frysta framlög til aðstoðarinnar eftir að tólf starfsmenn samtakanna voru sakaðir um að hafa aðstoðað Hamas í hryðjuverkaárás þeirra á Ísrael í október í fyrra. Þrátt fyrir talsverðan kulda í miðbænum var hiti í mótmælendum.