Ver formennsku Vöku í nefndum SHÍ
Júlíus Viggó Ólafsson, oddviti Vöku, gagnrýnir fulltrúa Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Íslands (SHÍ) fyrir að hafa yfirgefið kjörfund Stúdentaráðs í gær.
Röskvuliðar gengu af fundinum til að mótmæla því að Vaka, sem sigraði í kosningum til Stúdentaráðs HÍ í síðasta mánuði, tæki forsæti í öllum sex fastanefndum SHÍ. Röskva sagði það brjóta gegn verklagsreglum Stúdentaráðs og lýðræðishefð.
Júlíus Viggó segir hins vegar í samtali við fréttastofu að Vaka hafi farið að reglum. Meirihlutinn kjósi í nefndir og að þessu sinni hafi hvor fylking fengið tvo fulltrúa í hverja nefnd, en Vaka fengið formennsku í nefndunum.
„Við erum nýr meirihluti með nýjar áherslur og þetta er nauðsynlegt til að geta tekið ábyrgð á þeim málum sem við viljum koma í gegn.“
Hann segir framkomu Röskvu „fyrir neðan allar hellur“ en vonast til þess að þau komi aftur að borðinu til að sinna þeim störfum sem þau voru kjörin til að gegna.