Veðurstofan spáir áfram svipuðu veðri; skúrum eða slydduéljum um landið suðvestanvert. Bjart að mestu um landið norðaustanvert, en stöku skúrir þar seinnipartinn. Sunnan og suðvestan átt 5-13 m/s. Hiti 3 til 12 stig yfir daginn, hlýjast norðaustan til.
Á morgun er spáð heldur hægari vestlægri átt og bjartara veðri þó að líkur séu á stöku skúrum eða slydduéljum. Léttskýjað verður á Suðausturlandi.