9. maí 2024 kl. 15:00
Innlendar fréttir
Brunavarnir
Sina brann í Hellisskógi
Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út korter yfir eitt eftir hádegi í dag vegna sinubruna í Hellisskógi við Selfoss. Að sögn Jóns Þórs Jóhannssonar varðstjóra hafði kviknaði í um 800 fermetrum af sinu þegar slökkvilið kom á vettvang. Eldurinn kviknaði rétt við hellinn í Hellisskógi.
Búið er að slökkva eldinn. Slökkvistarf gekk vel, segir Jón Þór.