12. maí 2024 kl. 7:51
Innlendar fréttir
Veður
Rigning með köflum sunnanlands en úrkomulítið norðaustantil
Lægð skammt suðvestur af Reykjanesi veldur austlægri eða breytilegri átt í dag, víða verður gola eða kaldi.
Rigning verður með köflum, einkum sunnanlands en úrkomulítið um landið norðaustanvert.
Hiti verður 7 til 13 stig, en svalara norðvestantil.
Á morgun má búast við norðlægari vindi og strekkingi vestast. Lítilsháttar skúrir eða slydduél norðan heiða, en skúrir á Suðausturlandi.
Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig, mildast syðst.
Á þriðjudag kemur hæðarhryggur yfir landið með björtu veðri, en stöku skúrum suðaustanlands.