25. maí 2024 kl. 7:50
Innlendar fréttir
Veður

Von á hærri hitatölum um helgina

Lægðin sem gekk yfir landið í gær mjakast vestur til Grænlands og því fjarlægjast skilin landið. Enn er nokkuð hvasst um morguninn vestanlands en annars staðar á landinu er vindur á bilinu 5-10 metrar á sekúndu. Skýjað verður með köflum og þurrt en lítils háttar væta verður suðaustanlands. Norðaustantil verður léttskýjað.

Lægðin bar með sér hlýtt loft hingað til lands og því er von á háum hitatölum, sérstaklega þar sem sól fær að skína. Búast má við að hitastig fari upp í 20 stig á Norðurlandi eystra.

Á morgun er von á hægri suðaustanátt með lítils háttar vætu eða stöku skúrum. Hiti verður á bilinu 8 til 16 stig.

Áfram bjart og verður heitast norðaustantil á landinu.

Búast má við ágætis veðri í Ásbyrgi um helgina.RÚV / Einar Rafnsson