30. maí 2024 kl. 21:02
Innlendar fréttir
Leit og björgun

Leita manns sem talið er að hafi fallið í Fnjóská

Björgunarsveitarmenn úr sveitum af nær öllu Norðurlandi voru kallaðir til leitar eftir að tilkynnt var um að maður hefði fallið í Fnjóská í Fnjóskadal fyrr í kvöld.

Leitin beinist einna helst að svæðinu fyrir neðan brúna yfir þjóðveginn til Grenivíkur við utanverðan Eyjafjörð.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir leitina frekar víðtæka en beinist helst að svæðinu frá brúnni og niður að sjó.

Vegagerðin / -

Fnjóská í Fnjóskadal.