Margir leituðu ráða hjá heilsugæslunni í menguninni
Mikið var að gera við ráðgjöf hjá heilsugæslunni vegna gosmengunar á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Ingibjörg Rós Kjartansdóttir, fagstjóri hjúkrunar á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að minna hafi verið hringt út af óþægindum og meira um að leitað væri ráða: „Það var þá fólk sem var annað hvort leikskólastjórar eða eitthvað slíkt og var að spyrja með útiveruna. Fólk með alls konar hitting sem átti að vera utandyra hvort það væri ráðlegt eða ekki.“
Varðandi einkenni var aðallega spurt um óþægindi í hálsi og þurrk, segir Ingibjörg Rós, og þá hafi fólk með astma verið í erfiðleikum.
„Þetta gengur yfir, þetta bara tekur tíma, þ.a. fólk þarf að vera svolítið meðvitað um það. Ef það finnur fyrir svona óþægindum til dæmis í hálsi þá bara drekka vel af vatni. Og svo líka náttúrulega bara að hringja í okkur í 1700 eða fara á netspjallið ef að það er í einhverjum erfiðleikum og vantar að fá ráð þá bara ekki hika við það að hafa samband.“
Símanúmerið 1700 og netspjallið á heilsuvera.is er fyrsta stopp í heilbrigðiskerfinu. Símavakt er í 1700 allan sólarhringinn og netspjall Heilsuveru er opið frá átta á morgnana til tíu á kvöldin.