14. júní 2024 kl. 13:46
Innlendar fréttir
Akureyrarbær

Fimm bíla árekstur við bæjarmörk Akureyrar

Fimm bíla árekstur varð á hringveginum við bæjarmörk Akureyrar um klukkan eitt í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á vettvangi. Ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki. Einhverjir bílanna virðast þó talsvert skemmdir.

Mynd af fimm bíla árekstri við bæjarmörk Akureyrar
RÚV / Ágúst Ólafsson

Lögreglan stýrir umferð um hjáleið fram hjá vettvangi og ættu því ekki að verða miklar tafir vegna árekstursins.

Mynd af fimm bíla árekstri við bæjarmörk Akureyrar
RÚV / Ágúst Ólafsson

Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina og von er á talsverðum fjölda fólks í bæinn. Umferðin er þegar orðin nokkuð þung nærri bænum og kann að þyngjast enn meira þegar líða tekur á daginn.

Lögreglan á Akureyri er iðulega með mikinn viðbúnað vegna bíladaga. Hún biðlar til allra gesta að aka með gát og sýna þolinmæði í umferðinni.

Mynd af fimm bíla árekstri við bæjarmörk Akureyrar
RÚV / Ágúst Ólafsson