3. júlí 2024 kl. 9:07
Innlendar fréttir
Jarðhræringar
Fundu fyrir skjálftum í Húsafelli
Tveir jarðskjálftar um þrír að stærð urðu við Geitlandsjökul í Langjökli um klukkan korter í fjögur í nótt. Sá fyrri var 2,9 að stærð og skömmu síðar reið annar yfir sem var 3,3.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni bárust engar tilkynningar þangað um að skjálftarnir hefðu fundist, en fréttastofa hefur fengið ábendingar um að fólk í Húsafelli hafi fundið fyrir skjálftunum.