Nokkur munur er á veðri á milli landshluta þessa helgina. Vindur er yfirleitt norðlægur og verður á bilinu 3 til 8 metrar á sekúndu. Sunnan- og vestantil á landinu verður léttskýjað og hiti á bilinu 12 til 19 stig. Fyrir norðan og austan verður hins vegar skýjað og dálítil súld. Hiti þar verður á bilinu 5 til 12 stig. Seint á morgun og annað kvöld snýst vindur í vestlæga átt og þá mun létta til norðan- og austanlands.