16. júlí 2024 kl. 14:07
Innlendar fréttir
Jarðhræringar á Reykjanesskaga

Gæti komið kvikuhlaup eða eldgos eftir um þrjár til fjórar vikur

Lítil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga síðustu vikuna en von er á nýju hættumati frá Veðurstofu Íslands í dag.

Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir landris hafa verið á svipuðum hraða og fyrri gos en örlítið hraðar en fyrir síðasta gos sem byrjaði 29. maí.

Dónamyndir af eldgosinu við Sundhnúkgsgíga 3. júní 2024. Hraun slettist upp úr tveimur gígum í eldgosinu.
RÚV / Ragnar Visage

„Miðað við hvernig gögnin líta út núna þá gæti komið kvikuhlaup eða eldgos eftir um það bil þrjár til fjórar vikur. Allur okkar undirbúningur miðast við það.“

Landris og aflögunargögn benda til þess að kvika sé stöðugt að safnast fyrir undir Svartsengi. „Þegar það nær ákveðnum mörkum þá skýst það upp og kemur annaðhvort sem kvikuhlaup eða nær að brjótast upp á yfirborðið.“