43,5% landsmanna á aldrinum 25-34 ára voru með háskólamenntun árið 2023, þar af 31,3% karla og 57,5% kvenna. Tæp 38% höfðu lokið menntun á framhaldsskólastigi og 19% höfðu eingöngu lokið grunnmenntun. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Landsmenn á aldrinum 25-34 ára sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að hafa lokið háskólamenntun. 48,5% höfðu lokið slíkri menntun til samanburðar við 33,4% á landsbyggðinni.
Hlutfall háskólamenntunar í þessum aldurshópi er hærra á Íslandi en í Evrópusambandinu, þar sem meðaltalið er 43,1%. Evrópusambandið hefur sett sér það markmið að árið 2030 verði 45% 25-34 ára íbúa ríkja þess með háskólamenntun.