21. ágúst 2024 kl. 6:45
Innlendar fréttir
Veður

Gul viðvörun á Suðausturlandi vegna vinds

Gefin hefur verið út gul viðvörun á Suðausturlandi sem er í gildi á milli klukkan 11 og 21 í dag. Þar spáir norðaustan 13-20 metrum á sekúndu vestan til og snörpum vindhviðum við fjöll, t.d. í Mýrdal og Öræfum. Því geta aðstæður orðið varasamar fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.

Annars staðar á landinu spáir austan og norðaustan 5-13 metrum á sekúndum.

Í viðvörun Veðurstofu Íslands segir að varasamt geti verið að ferðast um Suðausturland í dag á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.RÚV / Bjarni Rúnarsson

Spáin gerir ráð fyrir rigningu sunnan og suðaustan til. Skýjað verður í öðrum landshlutum og dálítil væta af og til eftir hádegi. Hiti 6 til 12 stig.

Norðan 8-15 metrar á sekúndu á morgun, en 10-18 annað kvöld. Þurrt að kalla á sunnanverðu landinu, annars víða rigning eða súld og talsverð úrkoma norðaustan til. Hiti 5 til 13 stig, mildast syðst.