Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi í gær konu fyrir kynferðislega áreitni gegn barni.
Konan var ákærð fyrir að senda ólögráða dreng ítrekað kynferðisleg skilaboð í gegnum Instagram sem þóttu óviðeigandi, vanvirðandi, ósiðleg og særandi. Þó var fallið frá þeim hluta ákærunnar að um ítrekuð brot væri að ræða við meðferð málsins. Þá viðurkenndi konan að hafa sent drengnum skilaboðin.
Móðir drengsins krafðist tveggja milljóna í bætur fyrir hönd sonar síns. Konan var dæmd til 60 daga skilorðsbundinnar refsingar og til að greiða 300 þúsund krónur í bætur.