3. september 2024 kl. 16:37
Innlendar fréttir
Stjórnsýsla

Segir stytt­ast í ákvörð­un í máli Helga Magn­ús­ar

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir líða að því að hún taki ákvörðun í máli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara.

Hann er í leyfi eftir að Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari lagði það til við ráðherra í lok júlí að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum. Ástæðan var ummæli hans á opinberum vettvangi um hælisleitendur og flóttafólk, sem voru að mati ríkissaksóknara „ósæmileg og ósamrýmanleg starfi hans“. Málið er enn á borði ráðherra og óvíst er hvenær niðurstaða fæst í það.

„Það líður að því,“ sagði Guðrún eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Þýðir það í þessari viku?

„Ég treysti mér ekki alveg til að segja hvaða dag, en það líður að því.“

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari.RÚV-grafík / Jónmundur Gíslason