3. september 2024 kl. 16:51
Innlendar fréttir
Jarðhræringar

Skjálfti fimm að stærð í Bárð­ar­bungu

Jarðskjálfti, fimm að stærð, varð í Bárðarbunguöskju rétt eftir klukkan hálf fimm. Nokkur virkni hefur verið þar síðustu daga, en engin merki um gosóróa samkvæmt upplýsingum frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar.

Fyrstu mælingar bentu til þess að skjálftinn hefði verið 3,9 að stærð, en eftir endurmat kom í ljós að hann var þetta stærri. Veðurstofan segir þetta stærsta skjálfta síðan í apríl, þegar einn 5,4 að stærð reið yfir, en jarðskjálftar eru algengir í Bárðarbungu.

Bárðarbunga map
Google Maps