5. september 2024 kl. 18:40
Innlendar fréttir
Leit og björgun
Nokkuð erfiðar aðstæður voru til björgunar í fjallinu í dag.Mynd / Slysavarnarfélagið Landsbjörg
Fundu manninn í Kastárfjalli
Björgunarsveitir voru rétt í þessu að koma að göngumanninum sem lenti í vandræðum á Kastárfjalli austan Hafnar í Hornafirði í dag.
Maðurinn gerði viðbragðsaðilum sjálfur viðvart en nákvæm staðsetning fékkst ekki og var leitað á stóru svæði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á staðinn en komst ekki nærri vegna hvassviðris.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg var maðurinn orðinn nokkuð kaldur þegar að var komið.
Björgunarsveitarfólk var að meta stöðuna, en eftir það verður honum fylgt niður af fjallinu. Hann taldi sig geta gengið með aðstoð.
Erfiðar aðstæður voru í fjallinu í dag, snarbrattar skriður og krefjandi landslag til göngu.