8. september 2024 kl. 8:41
Innlendar fréttir
Grundarfjarðarbær

Grund­firð­ing­ar beðnir um að spara raf­magn

Rafmagnslaust varð á Grundarfirði og nærsveitum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er rafmagn komið aftur á frá dreifikerfi RARIK, en verið er að flytja vararafstöð á svæðið til þess að styðja við kerfið.

RARIK biður notendur að fara eins sparlega með rafmagn og kostur er á meðan.

Frá Grundarfirði.RÚV/Landinn / Einar Rafnsson