19. september 2024 kl. 10:58
Innlendar fréttir
Alþingi

Brynjar Níelsson segir af sér varaþingmennsku

RÚV

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, hefur sagt af sér varaþingmennsku.

Þetta tilkynnti hann í bréfi til Alþingis sem Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, las upp við upphaf þingfundar í dag.

Varaþingmenn flokksins í kjördæminu færast upp um eitt sæti og verður Kjartan Magnússon 1. þingmaður kjördæmisins.

Brynjar sat á þingi á árunum 2013 til 2021. Hann var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar þegar sá síðarnefndi var innanríkisráðherra og svo dómsmálaráðherra. Brynjar var ráðinn til fjármálaráðuneytisins í október í fyrra og gilti ráðningarsamningurinn fram til maí.