Athugið að þessi frétt er meira en 8 mánaða gömul

Ný fríhöfn fyrir farþega í millilandaflugi á Akureyrarflugvelli

Ágúst Ólafsson

,

Opnun fríhafnarinnar er hluti af miklum breytingum á Akureyrarflugvelli en hún er í nýrri 1.100 fermetra flugstöðvarbyggingu sem var tekin í notkun fyrr á árinu.

Fríhöfnin leysir af hólmi aðra minni sem Icelandair hefur rekið í gömlu flugstöðinni undanfarin ár. Akureyrarflugvöllur rekur þessa nýju fríhöfn í samstarfi við Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli.