Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út í kvöld til aðstoðar fjölda bíla sem voru í vandræðum í Kömbunum.
Talsverð hálka myndaðist og snjór sem saman gerðu að verkum að fjöldi bíla komst ekki leiðar sinnar og einhverjir smávægilegir árekstrar urðu. Einhverjir lentu utan vegar.
Björgunarsveitarfólk á fjórum bílum ferjaði bæði fólk og bíla niður af heiðinni. Í einhverjum tilfellum voru bílar skildir eftir á heiðinni.
Aðgerðum er að mestu lokið.
Fyrr í kvöld tilkynnti Vegagerðin um lokun Hellisheiðar vegna ófærðar. Búið er að opna heiðina til austurs.