Obama beindi spjótum sínum að Trump
Barack Obama og eiginkona hans Michelle Obama ferðast um Bandaríkin um þessar mundir og hvetja Bandaríkjamenn til að ganga að kjörborðinu 5. nóvember. Barack Obama ávarpaði kosningafund Harris í fyrsta sinn í gær í Pennsylvaníu, sem er meðal sjö sveifluríkja í kosningunum; þar sem fylgi sveiflast gjarnan milli Demókrata og Repúblikana.
Obama sagði kosningarnar ekki síður snúast um mannkosti heldur en gildi og stefnumál og að ekkert bendi til þess að Trump hugsi um neinn annan en sjálfan sig.
„Við þurfum ekki fjögur ár til viðbótar af hroka, flumbrugangi, rosta og sundrun. Bandaríkin eru reiðubúin að snúa blaðinu við. Við erum tilbúin fyrir betri sögu,“ sagði Obama. Hann gagnrýndi einnig stefnur Trumps, meðal annars í efnahags- og innflytjendamálum og sagði Harris í stakk búna til að sinna embættisstörfum forseta með sóma.
Athafnamaðurinn Elon Musk ávarpaði kosningafund Trumps í fyrsta sinn í Pennsylvaníu um síðustu helgi. Reuters hefur eftir heimildarmönnum að Musk komi fram á fleiri fyrirhuguðum kosningafundum í ríkinu á næstunni en framboð Trumps hefur ekki staðfest það.
Harris mælist með naumt forskot í Pennsylvaníu samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Fylgi hennar mælist 49 prósent en fylgi Trumps 48 prósent. Meðalfylgi Harris á landsvísu mælist 49 prósent samkvæmt nýjustu samantekt New York Times og meðalfylgi Trumps 46 prósent.